26.8.2007 | 14:00
Já.. jú, maður fær nú endurgreitt...
Þetta kalla ég jákvæða fréttamennsku, vel gert hjá fréttamanni (Davíð Logi Sigurðsson).
Það eru hvimleið viðbrögð hjá mér að upplifa oft sektarkennd varðandi hjálparstarf í peningaformi. Það er eins og ég treysti því ekki að innan skamms fái ég meiri pening, straumurinn er samt frekar stöðugur og hefur verið það síðastliðin ár. Við félagi minn vorum að ræða það um daginn hvernig hann ætti ofsalega nískan vin sem virtist alltaf blankur með áhyggjur og gæfi aldrei neinum með sér. Svo ætti hann kunningjahjón sem væru sí-gefandi, vinnandi hjálparstarf og þar fram eftir götunum ..þau fengju samt á einhvern undarlegan hátt alltaf meiri og meiri pening og væru bara frekar rík. Það virðist ekki alveg rökrétt.
Þetta er annars rosalega flott og vel gerð vefsíða. Myndir, bakgrunnssögur, kíkiði: www.kiva.org
En jájá, 25$ eru bara um 1600 krónur og þar sem maður fær jú endurgreitt hef ég enga afsökun.
If you can't feed a hundred people, then feed just one.
Mother Teresa
Ari Þór Vilhjálmsson tekur þátt í byltingarkenndri örlánastarfsemi á netinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Moggabloggarar :
Sjónarhorn annarra :
- Good News Network
- Tælenskar fréttir
- Kúbanskar fréttir
- Egypskar fréttir
- Tyrkneskar fréttir
- Suður Afrískar fréttir
- Ungverskar fréttir
- Grænlenskar fréttir
- Rússneskar fréttir
- Kólumbískar fréttir
- Ástralskar fréttir
- Indverskar fréttir
Önnur Skrif :
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl. Datt inná síðuna þína frá Toshiki og líkaði það sem ég les hér. Ég mun fleyta þessum link áfram enda frábær hugmynd á ferð.
kv.
Bára
Báran, 27.8.2007 kl. 11:15
Afsakaðu kyngreininguna en mér fannst eitthvað segja mér í skrifunum að þú værir kvenkyns
Báran, 27.8.2007 kl. 11:16
haha, þakka þér kærlega fyrir það Bára, ég kíkti á þína síðu og kem til með að skoða hana áfram, frábær skrif hjá þér og uppbyggileg!
Hvíslandi Fugl, 27.8.2007 kl. 13:31
Hæ.
Spennandi að vita hvort HVÍSLANDI FUGL sé kvenkyns eða karlkyns!!!!
Kær kveðja/Rósa
Rósa (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 16:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.